jólapælingar
Sátum við matarborðið og borðuðum uppáhaldsmat Kristins: tortellini. Hann vill helst hafa það í matinn á aðfangadag en féllst á að við hefðum það síðasta kvöldið fyrir jól í Svíþjóð. Við vorum að spjalla um hin mismunandi jólaboð. Kom í ljós að hann gerði ráð fyrir ansi mörgum á aðfangadag hjá Drífu og Silju. M.a. Antoni Erni og fjölskyldu. Og þegar ég reyndi að útskýra sagði snillingurinn: já ég skil, hann kemur ekki því hann og Silja þekkjast ekki! En koma Gunna og Berta...? Ekki auðvelt. En eftir því sem ég lýsti fleiri jólaboðum í hinum og þessum fjölskyldum var hann bara hinn ánægðasti. Og á gamlárskvöld dreymir hann um að kveikja sjálfur í einni rakettu.
Katla spyr á hverjum degi hvenær hún geti farið til Silju, núna? núna? en núna? Þetta með Ísland og flugvél og svona finnst henni engin fyrirstaða beinlínis. Já við förum bara í flugvélina núna! Sem sagt mikil tilhlökkun, og ekki síður í foreldrunum, í dag eru 16 dagar þangað til...

0 Comments:
Post a Comment
<< Home