barngóður laugardagur
Þá er maður smátt og smátt að koma sér inn í félagslífið í Stokkhólmi aftur. Fór m.a. í saumó í vikunni hjá Röggu Eiríks (fyrrverandi kynlífssérfræðingur fjölmiðla á Íslandi) sem er nýflutt hingað að vinna fyrir lyfjafyrirtæki. Mjög skemmtilegur hópur samankominn þar, íslenska tengslanetið sýndi sig og sannaði þegar Siggu Sveins vinkonu í Västerås var (vonandi) reddað nýrri au-pair með einu símtali úr saumaklúbbnum. Svona á þetta að vera. Ég, Arna og Guðrún lofuðum að halda næsta klúbb, enda tími til kominn að dömurnar í Norður-Stokkhólmi geri sér ferð suður fyrir bæinn og komist að því að hér er óhætt að vera..! Stefnum að því að hafa rauðvín, slúður og engan saumaskap. Reyndar heldur lítið um slúður í síðasta klúbbi, er það þroskamerki?
Við erum 6 manna fjölskylda í dag, Katla stóra og Sölvi í vist hjá okkur á meðan móðirin (áðurnefnd Sigga) kippir hálskirtlum úr bólgnum Västerås-búum og stöðvar í þeim blóðnasir. Búið að vera mikið fjör hjá krökkunum, Kristinn og Katla stóra (sem heitir reyndar ekki svona heldur Katla Kristín) búin að byggja framúrstefnulegt hús í garðinum, hér hefur verið málað og spilað, búið til brúðuleikhús og sitthvað fleira.
Í kvöld stendur svo til að fara í innflutningspartí til Jespers og Cicci í frábæra íbúð þeirra á Kungsholmen.
Setningu vikunnar á Katla sem raulaði "í takt við tímann" úr samnefndri bíómynd aftur og aftur þar til Kristinn vildi að hún hætti því. Þá svaraði sú stutta: "en ég VIL vera í takt við tímann!".
Lifið heil.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home