Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Friday, June 10, 2005

Fyrsta bátsferdin

Vid Sunna, ásamt Alfred&Björk, Siggu&Inga keyptum bát í vikunni og fengum hann afhendan í gaer. Keyptum thennan fína norska 18 feta mótorbát (115 hestöfl, keyrir 30 hnúta, 6 cylindra, 2T Mariner, 82 kW mótor=innskot fyrir strákana). Seljendur var fullkomnasta par í heimi sem er búid ad dúllast í bátnum sl. 3 ár svo hann lítur út sem nýr. Theim leist mjög illa á ad vid óreyndir Íslendingar med 2 börn (Kristinn og Katla) aetludum ad faera hann frá Mälaren yfir í Skerjagardinn, ca 3 klst leid. Sögdu samt lítid en kenndu okkur á bátinn.
Á leidinni lentum vid í ýmsum aevintýrum eins og ad geta ekki stoppad eda fest bátinn á bensínstödinni (fyrir framan fullt útikaffihús), tekin fyrir of hradan akstur af strandlöggunni (bara misskilningur, mamma!) sluppum med sekt af thví vid vorum svo mikil krútt, panik í slussen thegar vid fórum úr ferskvatni í sjó og svo audvitad ad reyna ad keyra af stad í hlutlausum thegar vid áttum ad aeda áfram úr slussen.
Annars gekk thetta bara vel og var audvitad ólýsanlega gaman ad sigla svona um og sjá borgina frá thessari hlid. Börnunum thótti thetta líka frábaert enda fullt af snakki, djúsi, spennu og eigid herbergi. Vid getum ekk bedid eftir ad kynnast bátnum betur og audvitad Skerjagardinum.

Úpps, var ad fá tölvupóst frá fyrrum eigandanum: "Jag var lite orolig för Er när Ni gav Er ut igår med tanke på hur många Ni var och ganska lite sjövana samt vinden."
Vid förum mjög varlega, ég lofa.

Ad lokum thá vantar okkur nafn á bátinn og efnum hér med til nafnakeppni á blogginu. Verdlaun tilkynnt sídar.

6 Comments:

Blogger Helgi said...

Æi Sigurður! 115 hestöfl = 82 KW! Notaðu bara annað hvort héðan í frá - það er einfaldast fyrir þig. Ef þú notar bæði, þá ef hefð fyrir því að skrifa hestöflin fyrst og svo kílóvöttin innan sviga strax á eftir, dæmi:

115 hp (82 KW)

Helgi Þór.

10:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Æi Helgi! Auðvitað vissi ég vel að 1 hp = 745.69987158227022 W.
En bara af því að einhverjir hafi sett eitthvað fram á ákveðinn hátt áður þá þarft þú ekki að apa allt upp eftir þeim. Kannski er tími til að fara eigin leiðir, Helgi. Var eitthvað rangt í því sem stóð í tæknilegu upplýsingunum eða stóð það bara ekki í þeirri röð sem þú ert vanur?

11:31 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju elskurnar mínar. Ég hélt ekki að tilveran gæti tekið þá stefnu að frumbinn minn færi af fúsum og frjálsum vilja til sjós.
Mér finnst lýsingin frekar skuggaleg miðað við þá sem ég fékk símleiðis og skil óróleika sölumannanna. Ég legg til að báturinn verði skírður Slussen, en þá með stórum staf. Svo finnst mér að það mætti reyna að fá rautt tjald á hann.
Til hamingju aftur.
svär-mor

12:58 PM  
Blogger eyja said...

Verð að blanda mér í hestaflaumræðuna, alvarlegt þegar menn skrifa af léttúð um jafn mikilvæga og alvarlega hluti sem skilgreiningar á mótorafli.
Sigurður notast við breska "hp" tölu en í Svíþjóð og flestum öðrum Evrópulöndum notast menn við þýsku skilgreininguna; 1 PS = 75 kp = 735.49875 W og því forðast maður að lenda í skilgreiningarkrísu með bresku hestöflin sem reyndar eru þrjú (BHP, HP og RAC) en engin af þessum mælieiningum eru SI einingar og því hafa vinsældir Watt einingarnar aukist sl ár og þá notast við Kilowött.
kveðja
Jóhann

7:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með sæfarið!! Gott að þið funduð einhverja til að deila þessu með ykkur. Er þetta ekki almennilegt fólk? Getum ekki beðið með að sjá bátinn og látum okkur í léttu rúmi liggja hver hestöflin eru svo lengi sem hann kemst 30 hnúta sem er álíka og góður Sóma bátur.
Verð á ferð í Stokkhólmi helgina 9-11 september og svo verðum við bæði á ferðinni á ráðstefnu 20-25 september. Er húsnæði á lausu á þessum tímum?
Pabbi

11:21 PM  
Blogger Sigga said...

Verdlaunasamkeppni, hmmm... Eins og ég hef ádur reynt ad koma á framfaeri án árangurs finnst mér MS Sigridur gott og gilt íslenskt nafn, og vel vid haefi ad skíra eftir elsta kvenkyns eiganda bátsins!

2:21 PM  

Post a Comment

<< Home