Afmæli Kristins

Afmælisdagur Kristins. Fyrst opnaði hann pakkana sína í sófanum með aðstoð Kötlu.

Svo fékk hann köku, glöggir átta sig á að það hefði verið hægt að byrja á nafninu aðeins lengra til vinstri, nn:in 2 eru vel klesst í lokin, sumt lærir maður aldrei.. Enn gleggri taka eftir bjórflöskunni í bakgrunni, til að taka af allan vafa tek ég fram að hann var ekki drukkinn með morgunmatnum, svo afslöppuð erum við ekki í sumarfríinu.

Svo fórum við í tívolí að ósk afmælisbarnsins. Þar var þessi mynd tekin í paparazzi-stíl, Kristinn var með Manchester United trefilinn sem hann keypti sér fyrir afmælispeninga. Þarna eru þeir feðgar nýkomnir úr víkingaskipinu sem sést (eins og Kristinn var að benda mér á) á því að hann er með trefilinn þétt bundinn um hálsinn svo hann myndi ekki fljúga af.
Er ekki ótrúlegt að þessi unglegi og myndarlegi maður við hlið hans sé faðir 9 ára drengs og bráðum 3ja barna faðir. Það finnst mér.

Í tívolí vorum við svo heppin að lenda á sýningu hjá Tobbe töframanni sem er mjög skemmtilegur fyrir krakka og foreldra.

Alveg óvænt hittum við Hlyn vin og fjölskyldu hans í tívolí. Þeir skelltu sér saman í víkingaskipið félagarnir.

Katla og Kristinn fóru saman í þetta hrikalega tæki (þau sjást bæði á myndinni). Eins gott að amma Sigga var ekki með. Mér stóð engan veginn á sama en það var gaman að fylgjast með svipnum á Kötlu sem breyttist frá því að vera pínu óttasleginn yfir í skælbros á nokkrum hringjum.

Daginn eftir var trampólínið sem Kristinn fékk frá foreldrunum og Kötlu sett saman. Þvílíkt ferlíki. Börnin voru fljót að tilkynna mér að í leiðbeiningum kæmi fram að óléttar konur mættu ekki hoppa á trampólíni. Ég sem var að vonast eftir að komast í tengsl við einhvers konar þyngdarleysi...
Þau hafa notað trampólínið mikið, voru m.a. rétt í þessu að koma inn eftir að hafa hoppað í hálftíma með pabba sínum. Öll 3 rennandi sveitt af áreynslu.

3 Comments:
Flottur afmælisdagur hjá þér Kristinn minn.
Hvernig verður fyrir ömmur og afa að hoppa á trampólíni ha-ha.
Frábært hvað þið eruð duglega að skrifa á síðuna núna, það er svo gaman að fylgjast með ykkur og sjá myndirnar.
´´Astarkveðjur
Halló halló kæra fjölskylda!
Frábært að skoða og fylgjast með ykkur á síðunni. Rosalega gaman.
Kveðja frá Vilborgu Víðis frænku
Úpsí, dúpsí. Ég hef ekki kíkt á síðuna í nokkra daga og það eru bara margir pistlar á síðunni. Líst vel á þetta, frábært að fylgjast með ykkur og sjá myndir. Ég gat nú ekki annað en brosað þegar ég las að krakkarnir hefðu tilkynnt þér að ófrískar konur mættu ekki hoppa á trampólíni. Hvernig er það Sunna mín, þú mátt ekki hoppa á trampólíni og ekki fara í saklausar vatnsrennibrautir á Mallorca?! En það fer nú að styttast í að þú getir farið að leika þér aftur :) Bið að heilsa öllum, verð endilega að heyra í ykkur sem fyrst því ég er með inneignarnótu sem þið eigið og þarf að fara að nýta! Kveðja, Linda
Post a Comment
<< Home