Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Saturday, January 29, 2005

náttúrubörn...

Sum ykkar kannist kannski við að Sigurður hafi látið þau orð falla að við "viljum gjarnan vera náttúrubörn". Allavega, í samræmi við þetta er nú búið að henda innipúkunum börnum okkar út í sólina og snjóinn. Þeim var mútað út með samloku og sátu svo útí garði að borða. Þegar þau voru búin að því tók Kristinn fram tvo sólstóla og næst þegar við lítum út liggja þau í sólbaði! Á eftir að sjá hvernig verður að láta þau hamast allan daginn á skíðum eftir rúman mánuð.
Engu að síður komin mikil tilhlökkun í okkur fyrir ferðina til Idre fjäll, verðum í geggjuðu húsi með sauna, nuddpotti og ég veit ekki hvað og hvað. Kannski maður sendi fjölskylduna bara á skíði og verði svo í húsmæðraorlofi ein inní húsi á daginn...hugmynd.
Katla er farin að ákveða mjög sjálfstætt í hverju hún er á daginn, kemur með ýmiss konar fatasamsetningar sem eru broslegar í mismiklum mæli.. Minnir mig svolítið á ákveðna systur mína á ákveðnum aldri... Þessa dagana er mjög vinsælt að vera með sítt bleikt perluhálsmen, spöng (afturábak), sokka af sitthvorri sortinni og svo bæði í pilsi og buxum.
Kristinn er alltaf sami performerinn, tók lagið Súperman (Laddi) með pabba sínum í gær við mikil tilþrif og rappaði svo standandi uppi á stól við 50cent-lag. Góð setning í laginu sem hljómar svona í munni Kristins: "æm a moggefokking díóambí". Frábært að hann skuli læra ensku svona snemma...
Jæja, nú eru þau farin að grátbiðja um að koma inn, best að trappa þetta upp hægt svo þau gefist ekki alveg upp á útiveru. Skellum okkur í sund á eftir og svo stendur IKEA-ferð fyrir dyrum. Ekkert eins og góð, löng IKEA-ferð til að gera góða helgi.
Góða helgi.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home