Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Tuesday, September 11, 2007

eftirspurn annað






Mikið er gaman að fá svona margar og góðar kveðjur á bloggið. Myndirnar af Völu Sigurðardóttur Snædal einni eru ca. 10 daga gamlar og eru væntanlegar nýrri myndir af henni (og þá vonandi vakandi) fljótlega. Svo varð þessi af Kristni og Sigurði að fljóta með þar sem Kristinn er að koma heim af mjög blautum fótboltaleik þar sem rigndi látlaust allan leikinn (sem fór 2-1 fyrir okkar mönnum).
Vala brosti í fyrsta sinn fyrir 4 dögum og þá til mömmu sinnar, hún endurtók leikinn í gær en síðan hefur hún ekki fengist til þess að brosa aftur. Við erum með hana í æfingum.
Lifið heil.

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Meiri dúllan og þau öll reyndar. Hlakka rosalega mikið til að koma til ykkar og sjá ykkur með eigin augum :)
Kveðja frá Norge, Linda

10:25 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sama segir hin föðursystirin, þið eruð frábær. Til lukku með fallega nafnið hennar. Hlakka mikið til að koma hitta ykkur öll.
Kveðja Ragnheiður og co.

11:16 PM  
Anonymous Anonymous said...

Gvuð (má segja það á þessu bloggi???) hvað maður er fallegur!!! Og þá er ég ekki bara að meina Sigurður ;o) Ég bara get ekki hætt að dást að því hvað hún Vala er mikið krútt og hlakka svooo.. til að hitta hana í eigin persónu. Verð að fara að skipuleggja fund í Sthm!!!

Baráttukveðjur!
Dísa.

11:12 AM  
Anonymous Anonymous said...

Heitir hun Valgerdur eda Vala?

nu ef hun heitir Valgerdur tha mun hun natturlega vera bara nafna min,
nafna sigurdardottir
annars er Vala yndislegt og nafnid haefir henni vel
rosalega falleg

2:33 PM  
Blogger Unknown said...

Hvernig gengur að ná brosmyndum? Æfingar í heila viku hljóta að fara að skila árangri. Bíð spennt eftir að sjá fleirir myndir af ykkur.
Kveðja frá Hrauntungunni

6:09 PM  
Anonymous Anonymous said...

Mikið er þetta fallegt fólk! Svo mannaleg öll. gaman að sjá hvað þið þroskist af samvistunum við konungsfjölskylduna þarna í Stokkhólmi. (Sjitt hvað maður þarf að vanda sig við að skrifa eitthvað gáfulegt og fyndið þegar maður veit að geðveikt margir eiga eftir að lesa þetta, hætti bara núna áður en ég geri mig að fífli)
Snorri og co

9:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Greinilegt að lögmál markaðarins gilda á þessari síðu - bara að halda uppi eftirspurn!

3:46 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég spyr sem sagt eftir fleiri myndum

5:56 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta eru meiri krúsubörnin öll saman! Til hamingu með þá nýjustu, nafnið er gullfallegt, og daman sömuleiðis. Vona að allt gangi vel og hlakka til að hitta ykkur um jólin.
Kær kveðja, Margrét.

12:56 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með nafnið! Mér finnst hún vera algjör Vala. Smellpassar. Fleiri myndir (af öllum).
Ella fertuga

1:48 AM  

Post a Comment

<< Home