Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Saturday, August 28, 2004

helgarfréttir

Þá er kominn laugardagur, köflótt veður í dag, ýmist glampandi sól eða skúrir, þó alltaf rúmlega 20 stiga hiti. Var að endurheimta húsbóndann eftir að hafa hleypt honum í siglingu með strákunum (Jóa, Helga, Herði og Inga) um skerjagarðinn í gær. Var víst agalega skemmtilegt, læt þá um að dæma hvað er hæft að setja á netið og hvað ekki af ferðasögunni...
Við betri helmingarnir skelltum okkur annars í bæinn á fimmtudagskvöldið (Arna, Guðrún, Sara, Sigga, Unnur og Jóna systir hennar), settum á okkur gloss og tylltum okkur á einhvern skvísustað við Stureplan. Vatt sér svo að okkur þjónn nokkur að nafni Daníel, talaði slæma íslensku en skiljanlega þó og kvaðst vera íslenskur í móðurættina. Hann var agalega spenntur yfir því að hitta þennan Íslendingahóp og við spenntar yfir því að vera komnar með gott samband við þjón sem getur hleypt okkur framfyrir röðina á einum aðalstað bæjarins. Alltaf að græða!
Katla og ég vorum í "slag" áðan, hún hélt höndunum á mér niðri og kallaði "gefstu upp?!" og svo: "gefstu nirur?!". Látum þetta vera gullkorn dagsins.
Lifið heil,
Sunna

Monday, August 23, 2004


Heimasætan Posted by Hello


Kristinn á leið í skóla í fyrsta sinn. Posted by Hello

hmmm..

Vil bara taka það fram að ég fór ekki að grenja yfir ÓL!
Sigurður Yngvi

...og meira af Älvsjöbúum

Kristinn var í fyrsta sinn á skóladagheimilinu í dag. Það er í herbergjum sem liggja upp að skólastofunni og látið hálfpartinn fljóta inn í skólastarfið sjálft. Sömu kennarar koma við sögu á skólatíma og á skóladagheimilinu. Í dag voru þau að skoða það sem verður í boði fyrir þau, kennarinn hafði á orði að Kristinn væri greinilega mjög hrifinn af bókum, vildi helst vera í lestrarhorninu. Hann er svo að kynnast einu helsta þjóðarsport Svía þessa dagana, bandí, sem strákarnir stunda grimmt í öllum frímínútum og hann tekur þátt, vopnaður kylfu sem er nánast tvöföld hann að stærð! Fyrir helgina var hann einn á móti tveimur, svo kom Linda kennari og var með honum í liði, þá rústuðu þau hinum.
Katla var heima með mömmu sinni í dag, starfsdagur í leikskólanum. Hún virðist ört sætta sig við að Kristinn sé byrjaður í skóla. Fór svo með mömmu í verslunarleiðangur í dag, er verið að reyna að ala hana upp sem góðan verslunarfélaga, borgar sig að byrja snemma. Daman gekk um Åhléns og valdi sér fjólublátt sett (pils og peysu) og vildi svo eignast kuldaskó, 4 barbídúkkur, pífusundbol og 2 dúkkukerrur. Erfitt að standast: " mamma, flííís, gerru sa, gerru sa!" en tókst samt einhvern veginn.
meira síðar, lifið heil,
Sunna

ps agalega gaman að vera smá Svíi og fylgjast með ÓL þessa dagana, hér á heimilinu er talað um Stefan, Carro og Christian eins og fjölskylduvini, (og þar með missti fyrrv. íþrótta-og félagsmálafulltrúinn í Fjarðabyggð þráðinn....). Við sitjum með gæsahúð og tárin í augunum eins og límd við skjáinn að horfa á þau sópa heim gullinu.

Thursday, August 19, 2004

Skólabyrjun

Þá er komið að því, strákurinn okkar er orðinn stór. Kristinn er byrjaður í skóla. Hann er alveg hrikalega spenntur, búinn ad vera med skólatöskuna og í skólaskónum í viku. Kvaddi alla í leikskólanum en sagðist myndi heilsa uppá. Þetta eru 10 krakkar í bekk ad leika sér og lita, okkur skilst ad það sé lítill lærdómur fyrsta árið. Svo er enginn heimalærdómur í sænskum skólum fyrstu 8 árin og auðvitað engin próf í grunnskólum, hún er svo slæm fyrir börnin þessi pressa.
Katla er alls ekkert sátt vid þetta, vill líka byrja í skóla og fara í ballerínubúning þangað. Hún fékk heldur enga tösku heldur bara lítið veski (hvað vorum við að pæla!). Hún er reyndar einnig búin að átta sig á því að hún er stærst í skólanum (kannski ekki alveg stærst) svo þetta hlýtur að blessast.
Á leið heim úr leikskólanum í dag flugu þessi fleygu orð af vörum dótturinnar í samtali við móðurina: Sunna sagði "eigum við að hitta Hauk og Hlyn bráðum?", Katla svaraði "já! ég elska Hauk! (og svo smá hugsunarpása), ef allir strákar elska mér meira þá elska ég líka strák!"