og enn fleiri myndir

Börnin voru með ábyrgðarhlutverk í athöfninni og alvarleg yfir því (og kannski öllu fólkinu sem var að horfa á þau), Kristinn rétti mömmu sinni hring brúðgumans og Katla rétti pabba sínum hring brúðarinnar.

Hér göngum við inn í salinn og má sjá spenntan veislustjórann í forgrunni, sjáið hvað fólk er ánægt okkar vegna, stórkostlegt!

...og við vorum ekki síður ánægð.





