Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Monday, November 28, 2005

snjór snjór snjór og meiri snjór

Það hefur ekki hætt að snjóa hér síðan í gærkvöldi. Þegar ég kom heim voru börnin (Kristinn, Katla og Sigurður Yngvi) búin að búa til stóran snjókarl og snjóhús (koja skv Kötlu). Alveg svakalega jólalegt, og svo eru húsin í götunni að lifna við með jólaseríum á víð og dreif (ekkert á við Bústaðaveginn eða Keflavík en samt).
Helgin var góð að vanda, ballett hjá Kötlu á laugardaginn. Það er orðinn siður hjá okkur hinum 3 að fara á Café Ojo við Odenplan á meðan hún lærir "fínir fætur, ljótir fætur" og fleira ballettlegt. Svo skelltum við okkur í tojs a rass (Toys are us) og versluðum fullt af jólagjöfum fyrir börn og fullorðna... bíði bara! Á laugardagskvöldið snæddum við svo hangikjöt, uppstúf og Ora-baunir hjá Alfreð og Björku, óþarft að taka fram að skammtar nr. 3 til 5 voru snæddir meira af vilja en mætti. Ofsalega rosalega svakalega var þetta gott.
Á sunnudeginum var fótbolti hjá Kristni, hann var bestur í marki að eigin mati og alsæll. Við komumst í þetta skiptið, síðasta sunnudag læstist bíllykillinn inní bíl meðan bíllinn var í gangi. Og þar sem sænsk lög banna að bílar séu í gangi bara sí svona þá gerðumst við lögbrjótar þarna í alveg örugglega 30 mínútur þar til lásasmiðurinn mætti á staðinn. Sá var svo sorgmæddur yfir þessu öllu saman að halda mætti að hann væri að færa okkur dánarfregnir, sem ég skil ekki alveg því hann græddi 850 krónur fyrir 2 mínútna vinnuframlag. Tilgerð segi ég.
Á döfinni eru svo ýmiskonar jólatengdar hátíðir, Katla verður Lúsía 13. des í leikskólanum (eins og allar hinar stelpurnar, enginn metnaður í að láta þær keppast um þetta eins og sumir gerðu og unnu, nefni engin nöfn). Hjá Kristni verður "julshow" þar sem allir þátttakendur mæta í jólasveinabúning, allt annað er leyndó en kennarinn hans, hún Sofia, laumaði því að okkur að við skyldum alls ekki gleyma myndavélinni þar sem Kristinn myndi hafa sérstakt hlutverk í showinu. Við bíðum spennt.
Sigurður rannsakari er svo á leið til Atlanta, USA á ráðstefnu (hann mun hitta Gunnar Tómasson, Hilmu Hólm og fleira skemmtilegt fólk en er að sjálfsögðu fyrst og fremst að fara að einbeita sér að vísindunum...). Svo mætir hann líklega foreldrum sínum bara niðri í bæ á leiðinni heim frá Bush-landi og þau koma öll saman hingað heim, þá verður mikil gleði!
Að lokum smá mont, Kristinn var í einhverjum reikningshugleiðingum áðan yfir kvöldmatnum, hann var spurður: hvað eru 8 helmingar mínus 2 helmingar? og svaraði að bragði: 3 heilir!
Lifið heil og gleðilegan jólamánuð.

Sunday, November 27, 2005

JÓLAGJAFAÓSKALISTI

KATLA

barbie
teygjur
spennur
íslenskar bækur
Jasmínbúning...eða aðra búninga
prinsessubúning (bleikan)
prinsessubíla
Brats-bol


KRISTINN

Yo-gi-oh spil.
leik í Gameboy (pókemon).
íslenskar bækur.
twister (spil).
teningaspil (Lúdó eða annað).
flotta boli.
skíði.
íslenskar videospólur.
íslenska tölvuleiki.
legó.

takk fyrir!