Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Thursday, December 29, 2005

jólaundirbúningur

(skrifað á Þorláksmessu en vegna tækniörðugleika ekki birt fyrr en nú, beðist er velvirðingar á þessu)

Jæja, bara komið Þorláksmessukvöld í Stokkhólmi eins og víðar. Litla fjölskyldan búin að versla í jólamatinn, kaupa gjafir barnanna og föt á foreldrana. Í ár fer enginn í jólaköttinn, Katla fann þessa fínu skyrtu á pabba sinn í MQ og Sunna fann kjól og topp í Vila á meðan hinir borðuðu ís í Gallerian.
Hringdum bara einu sinni í Gísla mág úr matarbúðinni, eigum svo bara eftir að hafa samband nokkrum sinnum milli 17.50 og 18.00 annað kvöld þegar kartöflurnar og brúna jukkið vilja ekki renna saman í eitt.... Tímamismunurinn kemur sér vel (fyrir Gísla og Ragnheiði). Og svo annað, sósulitur! það veit enginn hvað það er í Sverige! Endaði með að ég var látinn tala við kokkinn í síma í ICAbúðinni. Hann þóttist kenna mér hvernig maður býr til brúnar sósur frá grunni, eins og ég gæti lagt það á minnið si svona. Þetta með sósulitinn var amk ekki til í hans heimi.
Jæja, bara komið Þorláksmessukvöld í Stokkhólmi eins og víðar. Litla fjölskyldan búin að versla í jólamatinn, kaupa gjafir barnanna og föt á foreldrana. Í ár fer enginn í jólaköttinn.
Hringdum bara einu sinni í Gísla mág úr matarbúðinni, eigum svo bara eftir að hafa samband nokkrum sinnum milli 17.50 og 18.00 annað kvöld þegar kartöflurnar og brúna jukkið vilja ekki renna saman í eitt.... Tímamismunurinn kemur sér vel (fyrir Gísla og Ragnheiði). Og svo annað, sósulitur! það veit enginn hvað það er í Sverige! Endaði með að ég var látinn tala við kokkinn í síma í ICAbúðinni. Hann þóttist kenna mér hvernig maður býr til brúnar sósur frá grunni, eins og ég gæti lagt það á minnið si svona. Þetta með sósulitinn var amk ekki til í hans heimi.
Þetta hlýtur að reddast einhvern veginn, annars er til nóg pasta uppi í skáp...
Krakkarnir eru eins og von er orðin mjöööög spennt. Kristinn hefur reynt að sannfæra okkur um að það sé sniðugt að þau opni einn pakka í dag, hann er vissulega rökfastur en við bifumst ekki. Katla segir í sífellu: "nú er bara einn dag tills jólin eru hér!". Hún skilur þetta nú ekki alveg, eru jól um leið og við vöknum eða um leið og morgunbarnatíminn er búinn eða hvað eiginlega? að bíða til klukkan 6 verður erfitt.
Okkur er boðið í möndlugraut í hádeginu á morgun hjá Gunnu og Didda, það verður mjög gaman og brýtur upp daginn hjá okkur öllum. Ekki laust við að maður sé orðinn svolítið spenntur. Vissuð þið annars að rifsber heita rauð vínber í Svíþjóð? nei, ég bara spyr.
Jæja, nú er kominn tími til að setjast niður og skrifa jólakortin....hvað?? seint er betra en aldrei / sá sem bíður eftir einhverju skemmtilegu með flottri mynd bíður aldrei of lengi / oft tefur offlýtirinn / enginn verður óbarinn biskup...eða þannig.
Ég og Sigurður Yngvi óskum ykkur gleðilegra jóla og hlökkum til að hittast og heyrast á nýju ári,
kveðja,
Sunna
(um næstu jól mrs Snædal-Jónsdóttir-Kristinsson)

Monday, December 12, 2005

Desembermyndir

JÓLABAKSTUR
LOKASÝNING Í BALLETTSKÓLANUM

Wednesday, December 07, 2005


Þessi mynd er frá því í sumar en varð bara að komast á bloggið.

Monday, December 05, 2005

Hafiði tekið eftir því að ég blogga gjarnan eftir helgarnar? svona eins og það sem gerist í lífi manns gerist bara um helgar. Kannski kann ég bara svona vel við þetta form, á ég kannski erfitt með að sjá gullmolana í hversdagsleikanum..? Allavega,....þessi helgi var eins og fyrr nokkuð viðburðarrík. Kósíkvöld á föstudeginum, krakkarnir fengu að sofna yfir úrslitum Idol (les: Ídoool) og við svaka spennt að vita hvort Sebastian (blanda af Axl Rose og Stebba Hilmars) eða Agnes (Carola meets Britney) myndu hafa úrslitin. Ég skammast mín pínu fyrir að viðurkenna það en ég fékk gæsahúð þegar hún söng hið ó svo markaðsvæna lag Right here, right now.... sama tilfinning og þegar Carola vann með Fångad av en stormvind hér um árið. Jæja, nú hef ég sagt það. Bannað að stríða mér á þessu. Anyways, Agnes vann, 17 ára stúlkukind frá Vänersborg (útá landi) sem þessa stundina er að taka upp plötu á methraða með lögum sem var búið að semja fyrir hvern þann sem ynni keppnina, vonandi fílar hún þau greyið.
Ansi varð þetta langt um Idol, og bara komið að föstudagskvöldi. Á laugardeginum dúkkaði Halla Fróða upp með syni sína tvo, svo bættust Arna, Guðrún og Unnur í hópinn með börnin sín og hér voru bakaðar piparkökur eins og börnin hefðu aldrei gert annað. Þau skildu nú samt ekki alveg tilganginn með því að geyma meirihlutann í einhverja daga þannig að uppskeran eins og hún stendur í dag er ansi rýr.
Í gær fórum við Sigurður Yngvi í jólaglöggboð til hinna Svíanna sem við þekkjum (ekki Cicci og Jesper heldur Emilia og Christian) og það var mjög vel heppnað. Fengum m.a. piparkökur með gráðosti, hrikalega ljúffengt. Svo voru 3 tegundir af glöggi; áfengislaust, veikt og sterkt, vel merkt með stórum miðum. Við skelltum okkur svo í stuttan verslunarleiðangur (börnin voru á meðan með Eyrúnu og fleirum í jólaföndri). Það lá við heimþrá þar sem örkuðum í roki, rigningu og slabbi eftir Götgatan á Södermalm í leit að jólagjöfum. Með smá ímyndunarafli mátti sannfæra sig um að við værum á sjálfum Laugaveginum.
Það er sum sé komin jólastemmning fyrir allan peninginn (smá sænskusletta) hér á bæ og Katla biður á hverjum degi um að við skreytum meira. Hún er orðin mjög spennt að vera Lúsía í næstu viku og spyr annan hvern dag "eru jólin í dag?". Kristinn sér eins og áður um að kippa henni niður í blákaldann raunveruleikann. Hann á að syngja á morgun í jólashowi skólans en þegar ég sagðist myndi taka myndir af honum á morgun benti hann án nokkurrar viðkvæmni á að það þýddi ekki neitt því stelpan í 6 ára bekk sem stendur fyrir framan hann í kórnum sé höfðinu hærri en hann og hann sjáist því ekki neitt! En svo rættist nú úr þegar hann mundi að á einhverjum tímapunkti yrði hann staddur alla leið frammi við míkrófóninn og þá sæist hann nú aldeilis vel.
Þetta er orðið gott.
Lifið heil.