Krakkarnir
Kristinn, Katla og Vala
Thursday, August 28, 2008
Ég var að hringja til að athuga hvernig Völu líður í leikskólanum, í dag er fyrsti dagurinn þar sem hún er skilin eftir, sl. 3 daga höfum við verið með henni í aðlögun frá 9 til 15. Anneli fóstra sagði að hún nyti sín mjög vel, er að leika sér í pollunum og ekki grátið eitt tár síðan Sigurður Yngvi skildi hana eftir fyrir rúmum klukkutíma. Virtist aðallega móðguð yfir því að hann færi en svo fann hún pollana. Við höfum skipt með okkur hinni 3ja daga aðlögun síðan á mánudaginn, verið á staðnum í 6 klst/dag og þannig kynnst fóstrum, börnum og foreldrum vel. Þetta er einhver ný ofuraðlögun og okkur líkar þetta vel. Nú veit maður hvað öll nýju börnin heita (Mingus, Neo, Malva, Anton og Eric.... fullvissa ykkur um að fyrstu 3 nöfnin eru ekki algeng sænsk nöfn, Neo-nafnið er víst fengið úr Matrixmyndunum...), hvað foreldrar þeirra vinna við og hvar þau búa, maður er búinn að mingla eins og vindurinn þessa dagana.
Nú á maður 2 börn í skóla og 1 barn í leikskóla og 1 stykki hús, fullt af fullorðinspunktum eins og Svíinn segir. Mér finnst merkilegast hvað tíminn er fljótur að líða.
Aðallega ætlaði ég nú að sýna ykkur myndir, veit að fólk er spennt að sjá hvernig Vala 1 árs lítur út, Katla hin tannlausa og Kristinn 10 ára strákurinn. Njótið vel.
