Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Friday, September 24, 2004

helgin

Erum á leid í helgarferd til Borås og verdum fram á sunnudag hjá Ásgeiri, Dísu, Tómasi Jökli og Ingibjörgu. Mikil tilhlökkun í mannskapnum. Verd ad fara, fjölskyldan komin ad ná í mig í vinnuna, bíllin hladinn af djúsi, Lilla melodifestivalen og vonandi alveg strålande skapi.
góda helgi,
Sunna

Sunday, September 05, 2004


Kristinn og Katla í Aladdín-skónum frá ömmu Siggu Posted by Hello


Kristinn og Silja frænka Posted by Hello

Friday, September 03, 2004

Vikuskammturinn

Þá er kominn föstudagur, agalega ljúft. Stór dagur í vinnunni í dag þar sem var verið að kynna sameiginlegt logo spítalanna okkar. Eitthvað vantaði nú andagiftina í markaðsdeildina því niðurstaðan varð eitt stórt blátt K. Það sem var búið að byggja upp spennu fyrir þetta og svo kom bara K. Fyrir áhugasama má kíkja á karolinskauniversitetssjukhuset.se. Má ég þá frekar biðja um krossinn á Landspítalamerkinu. Íslendingar augljóslega meira smekkfólk...
Krakkarnir okkar alltaf jafn uppátektarsamir (þessi krútt). Katla fór í jólakjólnum í leikskólann í gær, snéri sér hring eftir hring og leið eins og prinsessu. Hún og Josefin á leikskólanum brugðu sér svo afsíðis í dag og komu tilbaka með bleikar strípur í hárinu. Fyrir áhugasama get ég því hér með upplýst að bláber geta gefið fagurbleikar strípur sé þeim makað vel í hárið....
Kristinn fór með nestisbox í skógarferði með skólanum í dag, agalega spenntur. Hann vill svo fara með 50 cent diskinn í skólann á mánudaginn. Við foreldrarnir eigum fullt í fangi með að útskýra af hverju blótandi rappari eigi kannski ekki upp á pallborðið né sé líklegt að skapa okkur vinsældir meðal kennara (hvað þá foreldra)!
Jæja, þetta var svona þetta helsta. Þökkum þeim sem hlýddu. Góða nótt.