Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Saturday, May 27, 2006

kjördagur

Mikið er gaman að fylgjast með kosningunum heima, æsispennandi svo ekki sé meira sagt. Við sátum límd fyrir framan Kastljós gærkvöldsins. Verð að segja að Svandís virðist vera sú eina sem nær að losa sig úr þrasinu sem kemur fljótt upp milli frambjóðenda og tala sem venjuleg manneskja í samræðum en ekki eins og pólitíkus. Frábært að fá svona sterka konu í pólitík. En tvö atriði standa upp úr þættinum. Fyrstan ber að nefna Ólaf F. með setninguna: "við reynum að vera alltaf með einhvern aldraðan, fatlaðan eða öryrkja í efstu sætunum"...... í alvöru talað! Annar gullmoli var Björn Ingi að reyna að veiða atkvæði í lokaræðu sinni "fólk er kannski ekki alltaf sammála okkur en það hefur þá nóg að tala um, og þannig er nú pólitík", hvernig hugsaði hann þetta? Er hann að höfða til anarkista eða fólks á mótþróaskeiði einhvers konar? mig grunar að auglýsingastofu Framsóknar hafi svelgst á kaffinu þegar hann lét þetta út úr sér. Svolítið leiðinlegt að Dagur og Vilhjálmur skuli vera að karpa þetta, það var helst eins og Villi væri pirraður á að Dagur væri ekki kurteisari við sér eldri menn: "svona haga menn sér ekki". Minnið er auðvitað stutt í kjósendum, það virðist vera erfitt í kosningabaráttunni að rifja upp hvernig umhverfið og áherslurnar voru fyrir tíma R-listans, meiri steypa og minna umhverfi í orðsins fyllstu merkingu (vá, ég hefði kannski átt að vinna í slagorðadeildinni!). Er nokkuð útilokað að Samfó og VG nái hreinum meirihluta? Maður getur látið sig dreyma.
Íslensku kosningunum eru gerð lítil skil í sænskum fjölmiðlum ótrúlegt en satt, hér eru menn að jafna sig á Júróvisjon, reyndar eru þeir Svíar sem við umgöngumst hæstánægðir með Finnana og fegnir að Carola hafi ekki unnið. Nú snúa menn sér að görðunum sínum og fínpússa þá í einn mánuð fram að Jónsmessu og blöðin fyllast brátt að hugmyndum um góðar síldar og kartöfluuppskriftir og hvaða snafs eigi að væta kverkarnar með á Midsommar enda er þetta jafnstór hátíð hér og jólin sjálf.
Við skelltum okkur í fyrstu bátsferð vorsins með mömmu sem var í heimsókn hjá okkur í vikunni. Bensínskammturinn var eitthvað lítill og mamma þurfti að húkka far á bensínstöðina...nei þetta er nú ekki alveg satt en svona í áttina. En veðrið var fallegt og báturinn hefur ekkert látið á sjá eftir veturinn, enn á eftir að skíra hann og ég endurlífga hér með nafnasamkeppnina frá því í fyrra. Mig grunar að Sigga komi með sína hugmynd aftur en ég tel gott að fá utanaðkomandi tillögur líka. Vegleg verðlaun í boði.
Við fórum svo í fyrstu tívolíferð sumarsins, Kristinn var mjög lukkulegur að vera kominn yfir 120cm mörkin sem gilda í nokkur tækin. Katla vildi frekar dóla sér í rólegu tækjunum sem hentaði ömmu hennar mjög vel.
Jæja góðir hálsar, ég ætla ekki að tefja ykkur frá kjörkössunum, vildi ég gæti verið á Íslandi í dag til að kjósa og karpa.
Lifið heil.
xU.

Thursday, May 18, 2006

Júróvisjon

Heldur grámyglulegur dagur í dag med rigningu og saensku roki (=gola). Ég settist í lestina med Stockholm city dagsins (lestarblad) og fletti upp á Júró-umfjölluninni. Tvö lög fengu haestu einkunn; saenska lagid (sjálfgefid) og svo íslenska!! Kommentid var svohljódandi: Störtskön tjej med mycket självironi. Och störig som bara fan! Antingen hatar man den eller älskar den." Lauslega thýtt: Aedisleg stelpa med stóran skammt af sjálfshádi. Pirrandi eins og sjálfur andsk. Annad hvort hatar madur thetta eda elskar. Ólíkt thví sem fólk á Fróni gaeti haldid hefur ekkert verid talad um Silvíu hér, their einblína alfarid á Carolu sem menn elska ad hata fyrir komment eins og "ég elska allt fólk, líka samkynhneigda" og "vesalings fólkid hefur bedid eftir ad hitta mig sídan 1991". Hún er svakaleg díva og m.a.s. vid hördustu addáendur hennar erum farin ad fatta ad thad er ekki kúl né forsvaranlegt ad elska Carolu. En hún kann ad nota röddina og vindinn (er med sér mann sem sér um viftuna, takid vel eftir í kvöld!). Svo hafa their áhyggjur af thví ad Grikkland eda Rússland steli sigrinum. Thad er varla minnst á möguleikann ad Svíar komist etv ekki í úrslit. Eins og ein fyrirsögnin var: Om Carola floppar flippar Sverige (ef hún klúdrar thessu naer Svíthjód sér aldrei). Ord ad sönnu. Í Svíthjód vilja menn geta treyst á ákvedinn stödugleika. Thess vegna kýs thjódin Göran Persson og Carolu aftur og aftur thrátt fyrir vera ekkert mjög hrifin af theim...

Friday, May 12, 2006

leikur dagsins

Älvsjö AIK keppti í dag við Hägersten AIK. Leikurinn var mjög jafn en fór að lokum 3-5 þar af eitt víti hjá hinum (sem var í raun svindl, en jú, vissulega kom Sammi við boltann með hendinni en samt..). Kristinn var alveg svakalega svekktur yfir úrslitunum í hátt í 10 mínútur og fyrst og fremst út af þessu: "ég var búinn að lofa sjálfum mér að ég skyldi skora mark í dag!". Katla var alsæl á meðan á leiknum stóð, lék sér non-stop við aðra litlusystur og var nokk sama um stöðuna. Ég mætti með kaffibrúsa (orðin avanseruð eins og þið heyrið) alveg staðráðin í að láta þjálfarann sjá um að skipa stráknum fyrir...gekk ekki alveg, klassíkerinn "hjólaðu í hann Kristinn" datt út úr munni mér amk 3svar alveg óvart - í alvörunni.
Fyrir þau ykkar sem eruð með Skype þá er gaman að segja frá því að við erum komin með web-kameru og þið getið því fengið okkur sprelllifandi beint inn í stofu hvenær sem ykkur sýnist (og okkur).
Góðar stundir.

Wednesday, May 10, 2006

nei ég var ekki hætt...


...bara að birta til öryggis svo textinn hyrfi ekki
Þessi mynd var tekin fyrir páska og klippingu.
Eftir klippingu eru þau svo til ekkert breytt hvað varðar hársídd, það tók margar vikur að fá Kristin til að samþykkja að koma í klippingu því hann vill alls ekki verða stutthærður. Núna er stefna mín að hann safni jafnsíðu en ekki of síðu (frekar Bon Jovi en Eiríkur Hauksson þið skiljið - sorrí Ásta..).
Ein breyting hefur þó orðið á og það ansi mikil í augum foreldranna, sjáið bara sjálf:



Að lokum er gaman að segja frá því að við fórum í okkar fyrstu 1. maí mótmæli síðan við fluttum hingað fyrir bráðum fjórum (!) árum. Börnin voru með sem og Eyrún okkar. Við tókum algjöra snilldarmynd af börnunum við hliðina á plakati sem á stóð Kapítalismi = dauði, Kapítalismi eða Húmanismi? Af virðingu við foreldrana birtist myndin ekki hér, aldursþroski minn (sem er orðinn töluverður, þroskinn sko, ekki aldurinn) segir mér að manni beri að virða skoðanir annarra þó að þær séu alveg út í hött...

Lifið heil