Kveðjur úr gæsaveislu
Sitjum úti á palli, fyndnar og fullar en kvenleikinn aldrei fjarri. Í gær komum við Sunnu á óvart þegar hún gekk inn í húsið og tíu vinkonur tóku óvænt á móti henni. Það var sannmælst um að við myndum ganga út ef ekki sæjust tár á hvörmum tilvonandi brúðar við hinn óvænta glaðning. Það útskýrir sig sjálft að hér erum við allar enn. Síðasti sólarhringur hefur gengið á með slúðri, slarki og lausn lífsgátunnar í garði Sunnu og Sigurðar. Í dag bættist svo Regína í hópinn þannig að vinkonur Sunnu hafa streymt að úr öllum heimshornum.
Halla sá okkur fyrir dýrindis máltíð í gærkveldi og í húsinu sváfu níu fagrar meyjar ásamt einum fögrum sveini, en Sigurði var skóflað út með börnin þar sem leiðin lá til Gautaborgar. Það vakti óneitanlega upp gamlar tilfinningar þegar veislunni barst óvænt kveðja frá kærasta Sunnu úr barnæsku, Johan Arnell, þar sem hann óskaði henni alls hins besta en játaði að hún hef'ði verið fyrsti kostur hans í hjónaband fyrir 25 árum síðan. Einhverjar vöflur komust á gæsina en á þessari stundu er þó flest sem bendir til þess að hún ætli að halda tilvonandi ráðahag til streitu þrátt fyrir óvænt afturhvarf til fortíðar.
Ýmislegt hefur komið fram á síðasta sólarhring sem ekki telst prenthæft og fer með okkur öllum í gröfina. Þó má greina frá því að gæsin er ekki öll þar sem hún er séð og játningar um ýmsa þjóðþekkta einstaklinga flugu hér yfir borðum......við segjum ekki meir. Við höfum látið hið sænska mentalítet lönd og leið og spilað helgina eftir eyranu, veðri og vindum.
Á döfinni er að taka út hinn sænska karlamarkað svo Sunna geti verið fullviss um að henni bjóðist ekki vænlegri karlkostur en Sigurður Yngvi. Við sjáum hvað setur.
Ingibjörg
Drífa
Guðrún Scheving
Dísa og Svanbjörn
Halla
Regína
Sigga
Guðrún Björk
Björk
Arna
Tobba