vetrarsport
Tvær vikur á smitdeild og ég er komin með flensuna. Kannski ekki svo skrýtið miðað við alla sjúklingana sem eru búnir að hósta framan í mig sl. 2 vikur, geri ráð fyrir að byggja upp ofur-ónæmiskerfi á næstu 5 mánuðum. Krakkarnir alltaf jafn frískir, það er gamla góða lýsið - ekki spurning.
Kristinn og Katla fóru í fyrsta sinn á ævi sinni á skíði sl. helgi. Við skelltum okkur til Flottsbro, skíðasvæði með 4 brekkum og 3 lyftum sem er rétt hjá Huddinge spítalanum. Þau fóru ekki í lyftu, létu sér nægja að vera í smá halla og prufa sig áfram. Þau voru ótrúlega dugleg að standa á skíðunum og skemmtu sér konunglega. Við brostum hringinn og tókum myndir í gríð og erg.
Katla fór með pabba sínum í ballett-tíma sl. helgi en var svakalega svekkt yfir því að fara alltaf á sama staðinn, var bara inni í 10 mínútur og neitaði svo. Sjáum til hvernig verður næsta laugardag - kannski hægt að múta henni með nýrri balletthárteygju...
Kristinn er á skautum með skólanum í dag. Aðalvinurinn í skólanum núna heitir Viktor, þeir leika sér með Yogiyou-spil alla daga á skóladagheimilinu, tala um þau, teikna af þeim og svo kemur hann heim og vill halda áfram að leika yogiyou við okkur. Maður er orðinn nokkur góður í að leika Exotia, Dark hole og Dark magician hlaupandi um allt hús.
Meira síðar.