Helgin var góð, og svolítið lengri fyrir 3/4 hluta fjölskyldunnar en undirritaða. Þessa vikuna er haustfrí í skólanum og m.a.s. lokað á skóladagheimilinu í dag þannig að börnin voru heima með pabba sínum og höfðu það gott. Í gær fórum við í sund, Kristinn er orðinn mjög öruggur og frakkur enda búinn að vera í sundnámskeiði og fer svo í framhald eftir jól. Svo voru Hlynur, Haukur og Einar Gunnar í heimsókn hjá okkur eftir sund, Arna er á Fróni að aðstoða við (les: stjórna) kosningabaráttu Þorbjargar vinkonu sinnar (framboð í 4. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Rvk).
Svo var farið með ungana í klippingu í dag - svolítið erfitt að halda í síðu greiðsluna sem Kristinn vill hafa (því hann vill fá afríkufléttur eins og Anton Örn var einu sinni með) og koma því til skila til hárgreiðslumeistarans. Hann er eiginlega orðinn stutthærður núna og fattaði það áðan...var miður sín í svona 2 mínútur þangað til mér tókst að færa rök fyrir því að hann væri í raun enn síðhærður. Þessi stúdentapólitíkurþátttaka borgar sig aftur og aftur...
Annars er eigandi stofunnar greinilega ánægður með að hafa okkur í kúnnahópnum, vinur hans kom inn á stofuna áðan og sagði stundarhátt: "frétti að þú værir kominn með lækna í kúnnahópinn, bara algjör kóngur!".
Ég er á leiðinni til Köben á fimmtudaginn að hitta Drífu og mömmu, við eyðum helginni saman og eigum eftir að hafa það alveg svakalega gott. Mamma er þegar komin út að vinna forvinnuna.
Svo er agalega gaman að geta sagt frá því að Ásgeir og Dísa eru búin að eignast lítinn prins, öllum líður vel og eru alsælir. Til hamingju aftur!
lifið heil