Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Saturday, March 31, 2007

skíðaferðin, fleiri myndir



skíðaferðin



Friday, March 16, 2007

skíðaferð og svona

Jæja elskurnar, þá er mín komin í gírinn aftur, amk í bili. Við erum í alveg svakalegu stuði fyrir skíðaferð sem verður lagt í á morgun. Ætlum að hitta Ásgeir, Dísu og krakkana í stuðbæ sem nefndur er Malugn (búumst við Hellu þeirra Svía, ætlum að borða í Grillinu) sem er 350km frá Stokkhólmi. Verðum svo komin um hádegi til Idre skíðasvæðis á sunnudeginum og ætlum að nýta daginn á skíðum. Hinar fjölskyldurnar 3 eru svo væntanlegar á sunnudagskvöldið. Þetta er 3ja árið í röð sem við förum í svona skíðaferð og orðinn ómissandi partur af vorvetrinum eins og Svíinn segir.
Fyrir þá sem ekki vita það er gaman að tilkynna að von er á fimmta meðlimi fjölskyldunnar Snædal-Kristinsson og það í lok ágúst (svona uþb 25/8).Ég er hætt að geta hneppt þrengstu gallabuxunum, staðan er 16+5 í dag. Mér líður bara vel, þakka ykkur fyrir, fór að finna spörk í fyrradag sem er frábært. Nú bíða börnin bara eftir að geta fundið líka. Þau vilja bæði fá sitt kyn, Kristinn til að hafa einhvern til að spila fótbolta með (Katla sármóðgaðist reyndar: "þú hefur nú bara aldrei spurt mig hvort ég vildi spila, ég vil það alveg").
Svo er maður nú orðinn sérfræðingur og montinn af því auðvitað. Þetta tók nú ekki nema rúm 13 ár... Er sem sagt búin með lyflækningar og á nú um ár eftir í að vera stoltur nýrnasérfræðingur líka. Nú erum við tveir sérfræðingar á heimilinu og skiptumst að því að dást að því hvað hitt sé klárt. Fallegt ekki satt.
Af börnunum (ekki má gleyma þeim) er það að frétta að Katla er að verða ansi stór fyrir leikskólann sinn, verður frábært fyrir hana að byrja í skóla í haust. Við vonumst til þess að hún komist að á deildinni hans Kristins þar sem hún þekkir orðið alla kennarana. Ég bauðst til þess að múta einhverjum í skólanum til að svo mætti vera en þau fullvissa mig um að það sé óþarfi. Kristinn er svo að flytja úr vernduðu deildinni sinni upp í alvöru stóran bekk með 25 börnum. Hann byrjar þá í ensku (leist ekki vel á það, segist ekki kunna nógu mikla ensku), náttúrufræði, samfélagsfræði, handavinnu og smíði. Ansi miklar breytingar sum sé. Sigurður var í þróunarsamtali (heitir það, án gríns) við kennarann í dag þar sem Kristinn sat með. Honum gengur vel í öllum fögum, orðinn miklu betri í að tapa í leikfimi (ekki það að hann tapi mikið, ekki sonur minn) en spjallar ansi mikið og truflar hina krakkana þá aðeins í tímum (kannist þið eitthvað við þetta mamma og pabbi?!).
Katla er komin í alvöru ballett skóla með lifandi píanóleikara og breskum kennara sem er frábær. Hún er alltaf sú eina sem er ekki í hvítum fötum enda algjör týpa og stjórnar sínum klæðaburði. Hefðuð átt að sjá hana í bleik-og gráröndóttu legghlífunum sem ná upp á læri og hún fór varla úr í nokkrar vikur eftir að hún fékk þær í afmælisgjöf. Notuðust helst eingöngu við nærbuxur og stuttermabol... Algjör Carrie í Sex and the city, í skrýtnum fötum en svo mikil týpa að hún kemst upp með það.
Svo er Kristinn í fótbolta og inni-bandý og er kallaður Kirre af félögunum (komumst að því óvart þegar hann kom í afmæli og var fagnað með þessu nafni, hann vill ekki kannast við að þetta sé notað eitthvað af viti).
Annars er von á okkur til Íslands um miðjan júní, förum fyrst til Mallorca í viku að halda upp á tengdamömmu sem verður sextug (ótrúlegt, virðist ekki degi eldri en fimmtug!).
Jæja, þá er að fara að kalla börnin inn í mat, Katla lærði nebblinlega að hjóla óstudd sl. helgi og er nú óstöðvandi í þeirri iðju. Kristinn vill svo ekki vera minni maður (sjá skýringar að ofan) og reynir að halda í við hana. Sigurður og íslensku strákarnir eru á leiðinni á pöbbarölt (er ekki alltaf svona, bara tilfallandi) og við verðum með kósíkvöld með let´s dance (sænsk útgáfa af Dancing with stars). Hafið það agalega gott.