Veit svo sem ekki hvort thad var markmid í sjálfu sér en kemur mér samt skemmtilega á óvart ad sjá ad thetta er 102. bloggfaerslan frá thví maelingar hófust, og ég alltaf ad skammast mín fyrir hvad ég blogga sjaldan. You do the math.
Var ad reyna ad vera á taeknilegu nótunum og setja inn maelistiku á hversu margir kíktu á síduna (svona eins konar markadskönnun). Tókst nú ekki betur en svo ad thetta birtist sem sér faersla en ekki svona pent útí kanti eins og hjá atvinnubloggurum. Tharf ad vinna adeins í thessu.
Sídan á páskunum hefur margt spennandi gerst í lífi okkar. Ber thar haest ad Kristinn tók thátt í fótboltamóti sl. helgi og skoradi thar sitt fyrsta mark á alvöru móti (hann er alltaf í vörn sko, enda fer enginn framhjá honum). Thvílík hamingja. Vid vorum öll thrjú ad horfa á og alveg ad springa úr monti. Sem verdlaun fékk hann H. Larsson bol frá Manchester United sem er
nr 17, snilld eda hvad?
Drengirnir kepptu sum sé 4 leiki, unnu 3 og jafntefli í einum. Enn of ungir samt til ad fá nokkur verdlaun, ekki einu sinni vidurkenningarskjal. Ég vil vera hlynnt saensku jafnadarmannakerfi í flestu tilliti en thetta med ad verdlauna ekki og gefa ekki einkunnir fyrr en fólk er komid langt yfir kynthroska er helst til ýkt thykir mér.
Svo erum vid ad fara ad fá píanó. Heyrdi á tal nokkurra yfirlaekna um daginn thar sem their voru ad raeda vandamál eins og "hvar á ég ad koma fyrir HINU píanóinu mínu í 300 fm húsinu mínu". Gjarnan kallad I-lands-problem í Svíthjód (vandamál fólks í thróUDUM löndum vs vandamál hinna í thróUNAR löndunum). Ég baudst til ad kippa til mín píanóinu og thad vard úr, fyrir 2 kampavínsflöskur. Nú er bara ad bidja nokkra nautsterka karlmenn ad hjálpa okkur (og ef vid finnum enga slíka thekkjum vid amk nokkra gódhjartada og hjálpfúsa, nefni engin nöfn).
Kristinn fékk kedjubréf um daginn sem hann átti ad senda 7 vinum sínum, hefur verid í gangi sídan 1996 og munu krakkarnir sem thátt taka komast í heimsmetabók Guiness (skil ekki hver getur fylgst med thví en oh well). Vil ég hér med bidja thá foreldra hvurs börn fá slíkt bréf á naestu dögum afsökunar...
Sem kona eigi einsömul tel ég mér skylt ad upplýsa vini mína og vandamenn um ad medgangan gengur prýdilega, barnid sparkar mikid en aldrei thegar Katla vill fá ad finna og er hún ordin úrkula vonar um ad finna nokkurn tímann nokkud. Sl. daga hefur barnid verid kallad Nonni, ekki neitt vitad um kynid en krökkunum fannst alveg svakalega snidugt ad hafa eitthvad gaelunafn. Katla lítur svo á ad Nonni sé í thessu tilfelli stúlkunafn.
Lifid heil.