Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Friday, April 28, 2006

svar við kalli fjöldans

Elskurnar mínar, það snertir mig djúpt að þið skulið sakna pistlanna, amk tveir notuðu orðið skemmtilegt yfir skrifin. Þið eigið skilið að heyra frá okkur og jafnvel njóta nokkurra mynda fyrir öll skiptin sem farin var fýluferð á heimasíðuna.
Hér verður stiklað á stóru í lífi familíunnar síðan farið var á Þorrablótið góða...
Í byrjun mars fórum við til Trysil í Noregi á skíði með fullt af skemmtilegu fólki.




Katla og Kristinn voru í lok vikunnar orðin svo brött í brekkunum að þau vildu helst fara í hóla-brekkuna þar sem hinar venjulegu sléttu brekkur þóttu ekki nógu spennandi. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með því hvað þau nutu sín vel á skíðum og undirrituð gat notað tækifærið æft sig þannig að þessi plógstaða sem sést á myndinni var í mesta lagi notuð 10 sinnum í ferðinni en mjaðmahreyfingarnar hins vegar orðnar mjög þróaðar (svishh svisshh svisshh - þið skiljið). Stefnan er að hnéskeljarnar verði eins og límdar saman á næsta ári. Þetta með shoulder to the valley sem Sigga kenndi mér í fyrra var víst algjörlega misskilið en hefur nú verið leiðrétt, notaði víst vitlausa öxl í vitlausa átt....

Já og svo er Katla komin með kærasta. Hann heitir Martin, er 5 ára og nýbyrjaður á leikskólanum. Dóttir okkar náði sér sum sé í sæta nýja strákinn sem allar voru hrifnar af. Hún gekk hreint til verks og sambandsupphafið var nokkurn veginn á þessa leið: M: "ég var ástfanginn af stelpu á gamla leikskólanum mínum" K: "geturðu þá ekki bara verið ástfanginn af mér núna?" M: "jú" K: "viltu giftas með mér" (hennar eigin þýðing þegar hún sagði okkur frá), M: "já". Og síðan eru þau óaðskiljanleg (ég og Martin fórum á sleða, ég og Martin vorum að klifra, ég og Martin lékum prinsessu og riddara leik). Við höfum m.a.s. hitt tengdaforeldrana tilvonandi. Svolítið hippalegt og afskaplega viðkunnanlegt fólk (ef einhver hefur séð Tillsammans þá minntu bæði þau og heimili þeirra á þá mynd). Drengurinn sjálfur er krúnurakaður og svolítið alvörugefinn, ætli þetta sé það sem koma skal hvað varðar Kötlu og smekk hennar á strákum? Er þetta uppreisn? Segi svona, þetta er hinn ljúfasti drengur og passar vel upp á hana Kötlu sína.

Kristinn er orðinn það sem hvorki við né hann bjuggumst við mjög áhugasamur um fótbolta. Frá því að við þurftum að draga hann á æfingar fyrir jól er hann núna farinn að fara út í garð og heimta að einhver æfi með honum sendingar. Hafði sitt að segja að um daginn fékk liðið hans (Älvsjö AIK) búning og svo fóru þeir að keppa á móti sem byrjaði þá og endar aldrei... Sum sé leikur um hverja helgi, stundum kl 9 á sunnudagsmorgni og m.a.s. á páskadag og annan í páskum. En hann hefur gaman af þessu drengurinn. Bjarni Palli vinur okkar var hjá okkur um páskana þannig að einn mótsdaginn voru þrír fullorðnir kallandi íslenskum ábendingum til vesalings Kristins, ég missti m.a. við eitt tækifæri upp úr mér "hjólaðu í hann Kristinn!" og var fegin að enginn skildi mig. Mömmurnar verða víst æstastar.