Mikið ofsalega er skrýtið að vera ekki heima á kjördag, alls ekki nógu skemmtilegt. Sit hér kl 6.30 að íslenskum tíma með kveikt á íslenskum útvarpsfréttum gærkvöldsins til þess að fá aðeins tilfinningu fyrir umræðunni og stemmningunni. Við höfum líka svolítið verið að kíkja á umræðuþættina, skemmtilegur þessi á Stöð 2 í fyrradag með maður á mann o.fl. Sorglegt samt hvað hefur verið mikill fókus á skoðanakannanir, leitun að almennilegum kosningamálum. Reyndar eru kosningamálin í ár auðvitað umhverfis og jafnréttismál (í víðasta skilningi þess orðs), stóru mál framtíðarinnar. Bara spurning hvort hinn almenni (óákveðni) kjósandi áttar sig almennilega á því...
Ég rumskaði kl 7 í morgun þegar Kristinn fór út til að ná í moggann (sænska dagblaðið er kallað það á þessu heimili) eins og venjulega, hann vill fara yfir stöðuna í ensku, spænsku, ítölsku og þýsku deildinni og lesa fréttirnar úr sænsku deildinni (við erum að tala um fótbolta, allir með?). Þegar ég komst í blaðið lúslas ég það til að finna fréttir af íslenskum kosningum í dag, en ekkert. Það eina sem ég fann var grein um NORSKA fremskritspartiet, og það eru ekki einu sinni kosningar í Noregi! Arrrg. Hvurslags endemis dónaskapur er þetta? 6000 íslendingar í Svíþjóð og ekkert minnst á kosningarnar! þarf vart að taka fram að ekkert hefur verið nefnt sl. viku heldur að verið sé að kjósa á Íslandi. Er þetta ekki innflytjendahatur? áhugaleysi?
Á sama tíma má sjá ómerkilegar sænskar fréttir um miklar rigningar í S-Svíþjóð, búðarrán í miðborg Stokkhólms svo ekki sé minnst á allt um sænskar kosningar rata samdægurs inn á mbl.is og visi.is. Ég er sármóðguð. Eina íslenska fréttin í sænskum blöðum í dag er "Islands Eirikur: Det här är ett litet krig!" um svekkelsi Eiríks Haukssonar yfir því hvað V-Evrópu löndum gekk illa í fyrradag. Sjarmerandi mynd af honum líka, maður verður pínu myrkfælinn. (sjá aftonbladet.se, um ca. miðja síðuna).
Jæja þá er ég búin að pústa, bara að halda áfram að fygljast með íslensku útvarpi og sjónvarpi í dag til þess að fá pínu stemmningu. Guð blessi alnetið.
Það getur líka verið hin mesta skemmtun að fylgjast með blaðaauglýsingum, tel mig t.d. sjá sterk áhrif frá kosningabaráttum Röskvu í gamla daga (við erum að tala um 10. áratuginn) í auglýsingum Samfylkingarinnar. Skýr málefnalisti með kosningaloforðum, stutt og skorinorð slagorð, allt sett í líflegan og litríkan búning. Það er ekki laust við að ég finni fyrir smá nostalgíu. Frjálslyndir ætla að drepa niður áhugann strax með löngum textum í sínum auglýsingum, og hvar eru konurnar í þessum flokki? nú, eru engar? kannski af því jafnréttismál eru formanninum jafn framandi og kínverska? Gæti verið.
Annars er full dagskrá hjá okkur, förum í dag að láta verðmeta skartgripina sem var stolið, tekur allt sinn tíma sjáið til. Ég fór aftur á bömmer í gær þegar við fórum yfir listann yfir allt sem hvarf. Alveg rétt, nælan frá ömmu, já alveg rétt, armbandið sem ég var með í brúðkaupinu. Hvað ætli maður fái fyrir fyrstu tennur barnanna sinna? einhver með verðhugmynd? En fyrir litlu bláu og bleiku armböndin sem þau voru með á fæðingardeildinni? Skýrsluvinnan er myndarleg, er búin að skrifa lýsingu og TEIKNA hvern einasta skartgrip sem var tekinn. Það er í alvöru ætlast til að maður geri þetta. Gæti kannski skannað inn teikningarnar á bloggið og leyft ykkur að giska á hvað er hvað, óvíst hvernig gengi.
Svo fer ég í 50 ára afmæli yfirlæknisins sem gaf okkur píanóið og eftir það verður haldið í kosninga-og júróvisjon partí með góðum hópi Íslendinga fram á nótt. Vonandi að netálagið haldi í kvöld svo við getum fylgst með, þýðir víst ekki að stóla á sænska sjónvarpið til að flytja okkur fréttir af kosningunum.
Ég óska ykkur á Íslandi góðrar skemmtunar í allri spennunni í kvöld, kannski verður þetta sögulegt, hver veit? Verið svo viðbúin því að spjalla eldsnemma í fyrramálið þegar við vöknum og viljum ræða úrslitin (tímamismunurinn er 2 tímar en við munum eiga erfitt með að bíða fram yfir hádegi..).
Lifið heil.
xV