Vala klappar!



Vala lærði að klappa í gær og var hálfhissa á yfirþyrmandi viðbrögðum sem hún framkallaði. Hún er annars nýbúin að afreka að fá sína fyrstu eyrnabólgu, kannski var hún að klappa fyrir því að finna ekki lengur til í eyranu, hver veit hvað leynist bak við þessu fallegu, bláu augu. Amoxicillin með jarðaberjabragði er allavega í miklu uppáhaldi, hún er annars frekar matglöð sem er gott því eftir 10 daga mun hún hætta á brjósti að degi til þar sem brjóstin byrja að vinna á föstudaginn í næstu viku. Við fórum að skoða leikskóla í gær í hverfinu og vorum á einum staðnum spurð að því af hverju við vildum setja hana svona snemma (í haust!) í pössun. Þeir eru ekkert að skafa ofan af því hérna, slepptum því að segja konunni að Kristinn hefði verið innan við 6 mánaða þegar hann byrjaði hjá Elsu dagmömmu...
