Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Tuesday, August 28, 2007

fleiri myndir








Saturday, August 25, 2007

Dóttir okkar II

Hér koma nokkrar myndir í viðbót vegna fjölda áskorana (engin þó eins ákveðin og frá móðursystur barnsins). Vil nota tækifærið um leið og þakka fyrir nafnatillögur, tek eftir því mynstri að fólk vill gjarnan benda á sitt eigið nafn.
Katla skólastelpa sinnir litlu systur af miklum móð. Kemur eldsnemma inn í herbergi á morgnana og situr við vögguna og horfir á hana löngum stundum og í hvert sinn sem sú stutta vaknar biður hún um að fá að halda á henni. Hún vill sinna öllu sem snýr að litlu systur sbr setningar eins og "já en ég vil líka fá að þurrka kúkinn" og "sagði læknirinn ekki að við ættum að vekja hana ef hún sefur meira en 5 tíma?".




Sunday, August 19, 2007

Dóttir okkar



Monday, August 13, 2007

pappírsbrúðkaup

Í gær héldum við Sigurður Yngvi eiginmaður minn upp á 1 árs brúðkaupsafmæli. Við fórum í blíðskaparveðri út að borða á frábæran stað niðri í bæ, nánar tiltekið á Kungsholmen, og sátum þar við sjávarsíðuna og létum fara vel um okkur. Skemmtileg tilviljun að borðið var skreytt með appelsínugulri gerberu sem var einmitt aðalblómið í brúðarvendi mínum. Skemmtileg líka frá að segja, en mun minni tilviljun, að við höfðum um nóg að tala og það þó að við töluðum lítið sem ekkert um börnin okkar (núverandi og komandi).
Í tilefni gærdagsins koma hér áður óbirtar myndir frá stóra deginum í fyrra.






Tuesday, August 07, 2007

bumbumynd



Við lögðum leið okkar í Astrid Lindgren safnið Junibacken í síðustu viku og þá var þessi mynd tekin á nýju myndavélina. Nú er staðan 37+3 vikur og við erum eiginlega ansi mikið farin að bíða eftir krílinu enda vitað að það kemur fyrr en varir....segi ekki meir. Í landi hinna skipulögðu er skipulagður keisari skipulagður með góðum fyrirvara. Komumst að því í síðustu viku að pabbinn getur að öllum líkindum fengið að gista á spítalanum fyrstu nóttina eftir fæðingu sem leggst auðvitað mjög vel í okkur. Þrátt fyrir kenningar mínar um að öll mín börn séu sitjandi virðist þetta barn hafa snúið sér alveg upp á sitt einsdæmi. Ætli þetta sé merki um að það verði allt öðruvísi karakter en hin tvö? ekki jafnþrjóskt kannski? á erfitt með að ímynda mér það.

Kristinn er með lista í gangi yfir 10 flottustu strákanöfnin og 10 flottustu stelpunöfnin, nú þegar komin 4-5 nöfn báðu megin. Þeir sem vilja hafa skoðun á því geta því reynt að hafa áhrif á hann. Honum hefur nú verið gerð grein fyrir því að við ráðum þessu á endanum en engu að síður gaman hvað hann er áhugasamur.

Thursday, August 02, 2007

Líberó!

Ég varð mjög spenntur þegar ég fékk þennan póst frá Líberó-klúbbnum í dag. Eitthvað fallegt við þetta.


"Hej Sigurdur!

Nu är du höggravid och ser säkert fram emot att snart få ha din kropp för dig själv igen. Ditt barn har nästan växt färdigt och har det ganska trångt just nu. Du kan säkert inte undgå att märka att det verkligen är full rulle där inne. Du kanske nästan kan fatta tag i en liten fot som trycks ut? Det är lika underligt som underbart att känna hur barnet stökar runt. Nu är det inte långt kvar till förlossningen! Snart är det dags att ordna med de sista detaljerna innan du ska föda. Ha det så bra tills vi hörs igen!


Vänliga hälsningar


Ulla Rode
Sjuksköterska"