Krakkarnir
Kristinn, Katla og Vala
Saturday, November 17, 2007
Tuesday, November 13, 2007
ja se det snöar
Það snjóar úti, sannkallaður jólasnjór og virðist ekkert lát á. Ég hef alltaf verið ein af þeim sem pirra mig á því hvað IKEA er komin snemma með jólaskrautið (hún IKEA sko, hér persónugerum við þessa stoð og styttu sænsks samfélags), hefur fundist Rammagerðin eiga að stjórna ferðinni eins og í gamla daga. En nú ætla ég að gefast upp og gefa eftir, ég ætla að hella mér út í jólastemmninguna. Fyrsta skref stigið í gær þegar við Kristinn fórum í hann Willys (Bónusbúðin okkar) og hann keypti julmust, honum finnst það æði. Er eiginlega gjörsamlega ódrekkandi andsk. sem er eins og misheppnuð tilraun Svía til að búa til jólaöl. Kannski fyndist þeim jólaölið okkar ekkert spes. Minnir mig á þegar ég horfði á Júróvisjon í vor og fékk sms frá Drífu: "eru Svíar að grínast með þessa hljómsveit, er þetta einhver gjörningur?", og svo skömmu síðar sms frá Cicci: "eru Íslendingar eitthvað klikk að senda þennan afdankaða rokkara eða er þetta grín eins og Silvía nótt?" Þetta kallast víst menningarárekstrar...
Annars hafa gengið á ýmsu sl. daga, Vala velti sér á laugardaginn frá maga yfir á bak í fyrsta sinn! Ég var að leggja mig og Sigurður Yngvi eina vitnið að þessum stórmerka atburði (ég er sko oftast vakandi, þetta var undantekning) þannig að ég mun æfa hana á fullu í vikunni til þess að fá að sjá þetta. Það verður heragi. Svo fór Katla á sína fyrstu fótboltaæfingu. Hún sýndi mjög aggressíva sóknarmennsku, átti góðar stoðsendingar og skoraði hvorki meira né minna en 2 mörk!
Í gær byrjaði hún svo í píanókennslu hjá íslenskum píanókennara. Katla spilaði fyrir hana Immi best úr ávaxtakörfunni og skv kennaranum hefur hún mjög góða píanófingur. Ég var montin.
Jæja, best að fara að skreyta.
Lifið heil.
Annars hafa gengið á ýmsu sl. daga, Vala velti sér á laugardaginn frá maga yfir á bak í fyrsta sinn! Ég var að leggja mig og Sigurður Yngvi eina vitnið að þessum stórmerka atburði (ég er sko oftast vakandi, þetta var undantekning) þannig að ég mun æfa hana á fullu í vikunni til þess að fá að sjá þetta. Það verður heragi. Svo fór Katla á sína fyrstu fótboltaæfingu. Hún sýndi mjög aggressíva sóknarmennsku, átti góðar stoðsendingar og skoraði hvorki meira né minna en 2 mörk!
Í gær byrjaði hún svo í píanókennslu hjá íslenskum píanókennara. Katla spilaði fyrir hana Immi best úr ávaxtakörfunni og skv kennaranum hefur hún mjög góða píanófingur. Ég var montin.
Jæja, best að fara að skreyta.
Lifið heil.
Friday, November 09, 2007
Fréttir af T43
Ég sit hér með tebolla, að hlusta á viðtal Evu Maríu við Guðlaugu Þorsteinsdóttur, finnst þessi viðtöl hennar ansi góð. Tölvan mín er komin úr viðgerð og virkar þrusuvel fyrir utan að Windows virkar ekki þegar ég vil horfa á ruv, hins vegar ekkert mál að horfa t.d. á youtube. Allar tillögur vel þegnar.
Hér dafna allir vel, Vala getur nú legið á maganum og haldið haus frá gólfi í allt að 30 sekúndur (já ég er í alvöru að telja). Ég vorkenni henni svo þegar hún er farin að stynja með andlitið í gólfinu og sný henni þá um leið við, pabba hennar finnst ég vera ansi lin við hana. Svo brosir hún út í allt og alla, síðast í morgun brosti hún þegar hún fann vinstri hnefa sinn, var eins og hún hefði fundið góðan vin.
Við fórum saman í vinnuna mína í gær. Þegar ég mætti á nýrnaskrifstofuna mætti mér stór útprentuð mynd af Völu sem ég hafði sent í vinnuna (sú sama og hér birtist)uppi á töflu, við hliðina á myndinni stóð: fröken Snaedal, nýjasti kolleginn! ÉG fór sum sé á fund þar sem unglæknar voru að kynna rannsóknirnar sínar og ætlaði Völu að sofa mest allan tímann. Hún vildi það hins vegar ekki. Að lokum fór svo að yfirmaður minn Olle Heimburger stóð með hana í fanginu á meðan ég flutti minn fyrirlestur. Þegar ég er að byrja gellur í honum standandi við risastóra ávaxtaskál: Sunna, borðar hún ananas? Meiri grínistinn.
Kristinn fór á sitt fyrsta skóladiskó í gærkvöldi, Halloweendiskó. Hann var alklæddur svörtum fötum og með grímu, mjög spenntur. Það var dansað og leikið sér, hann meira í leikjum, minna í dansinum. Skemmtilegustu fögin í skólanum eru stærðfræði og handavinna (kom honum sjálfum mjög á óvartf). Hann gaf Völu ofið og litríkt leikfang sem hann bjó sjálfur til, heitir hinu skemmtilega nafni hoppetossa.
Katla var lasin í tvo daga í þessari viku og grét yfir því að komast ekki í skólann. Fór svo spennt aftur á miðvikudaginn og kom heim með köku sem hún bakaði á skóladagheimilinu og var ekkert smá stolt af því.
Í síðustu viku vorum við með góða heimsókn, Silja og Drífa voru hjá okkur í 5 daga. Frændsystkynin eru alltaf jafngóð saman og við reyndum að rekja garnirnar úr Drífu um pólitíkina, mjög skemmtilegt. Svo komu Einar og Arna í heimsókn eitt kvöldið og úr varð skemmtileg og leyfi ég mér að fullyrða uppbyggileg umræða um ýmis pólitísk málefni. Mér fannst eins og samvinna Sjálfstæðisflokks og VG væri ekki jafnmikil fjarstæða eftir þetta kvöld og mér hefur áður þótt...
Lifið heil.


