Krakkarnir

Kristinn, Katla og Vala

Tuesday, March 29, 2005

vorið er komið og grundirnar gróa

Vorið kom um páskahelgina með látum. 10-15 stiga hiti og sól. Mokuðum af pallinum (garðurinn er enn fullur af snjó), settum upp borðið og snæddum hádegisverð í sólinni. Vinahópurinn svo boðinn til Guðrúnar "always the hostess" Scheving og hennar fjölskyldu í páskamat. Nóa-egg falin í garðinum handa krökkunum og Katla í skýjunum með að það stóð "best" í málshættinum hennar (batnandi manni er best að lifa). Við vinkonurnar sátum svo fram á kvöld úti á palli með bláar varir og teppi, neituðum að viðurkenna að það var orðið ansi kalt - ef vorið er komið þá getur maður setið úti á palli og hana nú. Skelltum okkur á Skansen að skoða dýrin í gær, Kristinn klappaði risakönguló og ormi og var stoltur á eftir, fengum svo hangikjet og uppstúf hjá Einar Gunnari (sem á afmæli í dag, til hamingju!) og Örnu. Betri mat hef ég ekki smakkað í langan tíma.
Desperate housewives að byrja í kvöld.. grunar að ég falli kylliflöt fyrir þessum þætti, erum amk nokkrar að fara að hittast hér í kvöld til að horfa. Spái því að við setjumst niður í kjallara með popp og svo verði Sigurður að snattast þarna í kring með tölvuna sína "að rannsaka" með annað augað á skjánum. Þekki minn mann.
Talandi um gott sjónvarpsefni þá sáum við þátt ársins (án allrar samkeppni) á heimasíðu stöðvar 2 um helgina. Kristján Már Unnarsson að lýsa ljósdepli í fjarska og biðja Pál Magnússon að veifa til landans á meðan beðið var eftir Nýja Íslendingnum. Nú halda menn bara niðrí sér andanum og vona að hann verði okkur ekki til skammar (sbr Sæmi rokk: please don't say those words my friend). Svíar glotta útí annað og óska okkur til hamingju með fenginn, eða þannig...
Góðar stundir.

Thursday, March 17, 2005

Skídaferdin

Vid, litla fjölskyldan á T43, erum nú komin úr skídaferdinni. Áttum heint út sagt frábaera ferd. Bjuggum í risastóru tveggja haeda húsi, med gufu og litlum nuddpotti. Skídudum beint frá húsinu nidur brekkurnar. Svo var félagsskapurinn glaesilegur, stór hópur íslendinga sem thekktist ad einhverju leiti fyrir ferdina en mjög vel eftir. Kristinn og Katla voru í skídaskóla í 90 mín á dag og gekk ótrúlega. Voru farin ad skída sjálf á thridja degi, fara í stóla og diskalyftur og hvadeina. Kristinn sagdi reyndar á ödrum degi eftir 20 byltuna: "Ég aetla aldrei aftur á skídi á aevinni, vid hefdum aldrei átt ad koma hingad". Fékk svo bara pasta og kókóskúlu og var búinn ad jafna sig eftir thad. Katla fór ad gráta á hverjum morgni thegar vid tródum henni í skídagallann og vildi heldur vera heima en sagdi svo alltaf "Gaman" thegar hún var kominn á skídin. Merkileg börn. Thau eignudust líka nýja vini í ferdinni, horfdu á 20 bíómyndir og hámudu í sig nokkur kíló af saelgaeti. Vid fullordna fólkid fengum dýrindismáltíd á hverju kvöldi og gítarspil og söng. Katla átti svo setninguna: "Hvad er afi thinn ad gera?" vid Ingvar pabba hennar Thórunnar litlu. Pínu vandreadalegt en líka soldid krúttlegt.
Ég lenti svo í smá adgerd hjá Arnari háls, nef og eyrna-laekni eftir ad ég braut 2 metra gler-sturtuklefahurd og fékk hana yfir mig. Fékk svona smá sár hér og thar og eitt staerra á bringuna. Arnar sem fyrr um daginn hafdi saumad fingur á Siggur Sveins átti eftir smá deyfingu og saumadót til ad tjasla mér saman. 7 spor. Ég tók thessu vitanlega eins og madur, hafdi mestar áhyggjur af Sunnu og stelpunum! Hef svo verid í fórnarlambshlutverki sídan thá og líkar vel.

Jaeja ég er víst á launum svo thad er best ad fara í mat.

Sigurdur Yngvi

Wednesday, March 16, 2005

Systurdóttir

Ég er búinn ad eignast systurdóttur! Stóra systir, hún Ragnheidur, eignadist litla stelpu 15. mars klukkan 02.08. Líkist mér víst alveg svakalega, ekki slaemt thó ég segi sjálfur frá. Innilega til hamingju, Ragnheidur, Gísli Örn, Anton Örn og Úlfar Örn.

Sigurdur Yngvi

Wednesday, March 02, 2005

Hvad dettur manni í hug ad gera á brádamóttökunni klukkan 2 ad nóttu thegar dópistinn sem aepti á thjónustu fyrir hálftíma er sofnadur svefni hinna réttlátu og ég nýbúin ad fá mér kaffi til ad díla vid hann? Ja, ekki fer ég ad sofa. Thá er nú gott ad hafa bloggid.
Ég er nýbúin ad lesa 10 meil sem skrifud hafa verid af skídahópnum góda sem deila mun húsi í Idre fjäll í naestu viku. Sigga tók upp á thví ad skipa nidur í herbergi og vid Sigurdur endudum med thví ad vera eina parid sem sett var í koju (allir hinir í hjónarúm nema Jói og Gudrún í einhverju hálfbreidu). Ég hvorki thori, vil né get skilid skotid sem felst í thessari skiptingu... Minn madur og Gudrún voru nú ekki á thví ad taka thessu thegjandi og hafa verid miklar hugmyndir um hvernig sé réttlátast ad skipta. Í thví samhengi hafa verid nefnd slagsmál, blautbuxnakeppnir og fleira í theim dúr. Allt á mjög háu plani sum sé en drepfyndid eins og thid getid ímyndad ykkur. Sjálfri finnst mér ad Friendsspilid gaeti útkljád málid....hvad?!
Ad ödru. Katla er agalega mikid ad spá í kaerustumál thessa dagana. Sagdi pabba sínum um daginn ad hún aetladi ad giftast honum. Svo leid vika og thá tilkynnti hún honum mjög alvarlega ad "ég aetla ekki lengur ad giftast med thér pabbi", smellti svo á hann kossi. Í gaer útskýrdi hún málid samt fyrir mér svo ég vaeri ekki ad gera mér einhverjar einokunargrillur: "pabbi minn á tvö kaerustupör, thig og mig". Svo kemur Kristinn og segir ad hún geti ekki gifst honum, "thú ert bara barn", hún trúdi thessu mátulega.
Ad lokum vil ég óska Söru, Helga og Fannari innilega til hamingju med litla kútinn sem faeddist á laugardaginn var. Madur er ad reyna ad vera ekki uppáthrengjandi og ókurteis og thví ekki farin í heimsókn ad kíkja thó ég idi í skinninu ad sjá drenginn. Hann er víst fallegur eins og mamma sín...
Thakka theim sem hlýddu. Legg nú í stofugang um smitdeildir hússins ádur en ég fer upp á herbergi med Dís (ótrúlegt en satt, ekki búin ad lesa hana ennthá en búin ad vera med hana í láni hjá Dísu í 2 ár). Hef nú thegar séd nokkur komment í bókinni sem ég kannast vid frá systur eins höfundarins.. (Arna, känn dig träffad).
Sunna